Þinn leikur.
Þín leið.

Knattspyrnuþjálfun fyrir stráka 7–14 ára.

Þjálfun

Smáhópaþjálfun

Þjálfun í 3–5 manna hópum. Við æfum fyrstu snertingu, knattrak og leik einn á móti einum.

Áætlað verð 44.900 kr. á mann · 8 æfingar

Skrá áhuga

Einstaklingsþjálfun

Við veljum eitt atriði í þínum leik og vinnum markvisst í því, hvort sem það er móttaka undir pressu eða lokaskotið.

Einn leikmaður
10.000 kr. á æfingu

Tveir saman
7.000 kr. á mann á æfingu

Skrá áhuga á paraþjálfun
Skrá áhuga

Fjarþjálfun

Persónuleg leiðsögn með Sigurði í myndsímtölum. Við skoðum valin atvik úr leiknum þínum og veljum atriði til að vinna að í næstu æfingu eða leik.

29.900 kr. / 4 vikur
Nánar um pakkann
  • 4 myndsímtöl · 30 mínútur
  • Allt að 20 mín. af völdum myndskeiðum skoðaðar fyrir hvert símtal
  • Stutt samantekt og 1–2 áhersluatriði eftir hvert símtal

Pakki endurnýjaður eftir samkomulagi.

Skrá áhuga
VETURINN 2026/27

Vetraræfingar

Æfingalota fyrir metnaðarfulla leikmenn.

Við undirbúum æfingalotu fyrir litla hópa á höfuðborgarsvæðinu. Foreldrar geta skráð áhuga og fengið dagskrá þegar völlur og tímar liggja fyrir.

Skrá áhuga á vetraræfingum
Áætluð tilhögunÍ undirbúningi
Tímabil í skoðun
15. des. 2026 – 6. jan. 2027
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Æfingafjöldi
8 æfingar á hóp
Hópstærð
3–5 leikmenn
Áætlað verð á leikmann
44.900 kr.

Dagsetningar hópa, æfingastaður og verð bíða staðfestingar.

Sigurður Flemmingsson

UEFA BUEFA B YouthExpert in Youth Football · MBPCoerver Coaching Diploma 1 og 2

Sigurður er aðalþjálfari U12 í akademíu AIK í Stokkhólmi og leiðir leikmannaþróun hjá U10–U15.

Hjá Offscript fær hver leikmaður að prófa sig áfram. Við æfum að líta upp áður en boltinn kemur, finna laust svæði og þora að taka mann á í leik.

Spyrja Sigurð

Spurt og svarað

Fyrir hverja er þjálfunin?

Æfingarnar eru fyrir stráka á aldrinum 7–14 ára sem vilja verja meiri tíma með boltann. Við miðum verkefnin við aldur, reynslu og það sem leikmaðurinn vill bæta.

Hvernig veljum við þjálfun?

Smáhópur hentar þeim sem vilja æfa ákvarðanir í leik við aðra. Einstaklingstími gefur meira rými fyrir eitt afmarkað atriði. Fjarþjálfun hentar þeim sem vilja æfa sjálfstætt með leiðsögn.

Hvernig virkar fjarþjálfun?

Í boði er 4 vikna pakki á 29.900 kr. með 4 persónulegum myndsímtölum, 30 mínútum í hvert skipti. Fyrir hvert símtal skoðar Sigurður allt að 20 mínútur af völdum myndskeiðum sem þið sendið. Eftir símtalið fær leikmaðurinn stutta samantekt og eitt til tvö atriði til að vinna að. Ef upptaka er ekki til er hægt að vinna út frá reynslu leikmannsins úr æfingum og leikjum. Foreldri eða forráðamaður sér um bókun og sendingu upptaka. Endurnýjun er ákveðin að loknum pakka. Stakur tími með sama undirbúningi kostar 9.900 kr..

Hvar og hvenær verða vetraræfingarnar?

Stefnt er að æfingum á höfuðborgarsvæðinu innan tímabilsins 15. des. 2026 – 6. jan. 2027. Nákvæmur völlur og tímar hvers hóps verða kynnt áður en gengið er frá bókun.

Hvað kostar vetrarþjálfunin?

Áætlað verð er 44.900 kr. á leikmann fyrir 8 æfingar í 3–5 manna hópi innan tímabilsins 15. des. 2026 – 6. jan. 2027. Endanlegt verð liggur fyrir áður en bókun er staðfest.

Hvað kosta einstaklings- og paraæfingar?

Einstaklingsæfing kostar 10.000 kr.. Þegar tveir leikmenn æfa saman er verðið 7.000 kr. á mann á æfingu. Tímar og æfingastaður eru ákveðnir fyrir bókun.

Skuldbindur áhugaskráning okkur til að greiða?

Nei. Foreldri eða forráðamaður sendir inn netfang og velur þjálfun. Við höfum samband með nánari upplýsingar og þið ákveðið þá hvort þið viljið bóka.

Skrá áhuga

Foreldri eða forráðamaður fyllir út skráninguna með leikmanninum. Svörin hjálpa Sigurði að meta hvort þjálfunin henti og raða í hópa eftir aldri, reynslu og færni.

Áhugaskráning er óbindandi. Sigurður fer yfir umsóknina og hefur samband áður en pláss er staðfest.